Um okkur
Íslenskur textíliðnaður hf (Ístex hf) er ullarvinnslufyrirtæki sem vinnur að því að skapa sem mest verðmæti úr íslenskri ull.
Markmið Ístex er að framleiða hágæða vörur úr íslenskri ull fyrir þá sem kjósa náttúrulegar, sjálfbærar og umhverfisvænar vörur.
Fyrirtækið rekur ullarþvottarstöð á Blönduósi og spuna- og bandverksmiðju í Mosfellsbæ. Ullarvinnsla í Mosfellsbæ hefur staðið samfleytt frá árinu 1896, áður undir nafninu Álafoss. Ístex hf tók við starfseminni árið 1991. Bændur eiga yfir 80% hlut í Ístex.
Ístex kaupir ull beint frá bændum en félagið þvær og meðhöndlar um 99% af allri íslenskri ull. Ístex miðar að því að lágmarka umhverfisáhrif sín. Þvegin ull frá Blönduósi er vottuð samkvæmt STANDARD 100 by OEKO-TEX®.
Ístex framleiðir handprjónaband úr íslenskri ull og má þar nefna Álafosslopa, Einbandi, Jöklalopa, Léttlopa og Plötulopa. Ístex gefur út handprjónabækur með fjölbreyttri hönnun. Þá framleiðir Ístex ullarteppi og hefur hafið framleiðslu á sængum úr íslenskri ull.
Vörur Ístex eru seldar víða um heim.
Hlutabréf til sölu
Hægt verður að skrá sig í gegnum Ullarmat.is, hafa beint samband í gegnum siggi@istex.is eða í síma 566 6302.
Hafa samband
Sölumál – Skrifstofa, 566-6300
Spunaverksmiðjan í Mosfellsbæ, 566-6300
Ullarþvottarstöðin á Blönduósi, 483-4290
Gæða- og þróunarmál, 566-7730
Ullarviðskipti og ullarflokkun, 483-4290
Afreikningar bænda, 566-6302
Hlutabréf, 566-6302
Inn- og útflutningur, 566-6300
Helstu stjórnendur
Sigurður Sævar Gunnarsson, framkvæmdastjóri, 566-6302
Eugène Pilard, verksmiðjustjóri í Mosfellsbæ, 566-6306
Guðmundur Svavarsson, verksmiðjustóri á Blönduósi, 483-4290
Rebekka Kristjánsdóttir, gjaldkeri og sölustjóri, 566-6304
Stjórn
Gunnar Þórarinsson, stjórnarformaður
Jóhannes Sveinbjörnsson, varaformaður
Örvar Þór Ólafsson, ritari
Þuríður Lillý Sigurðardóttir
Þórhildur Þorsteinsdóttir