Lopi
Ístex framleiðir handprjónaband úr íslenskri ull í mismunandi grófleika. Allt okkar band er úr 100% ull, að Hosubandi undanskildu.
Okkar sérstaða er fallegt og fjölbreytt litaúrval. Mikið fer fyrir samkembtum litum, sem fara vel við Lopa. Náttúrulegir litir íslensku ullarnar eru notaðir ólitaðir í marga liti. Öll okkar litarefni uppfylla OEKO-TEX 100 staðalinn.
Handprjónaband
Álafosslopi
Álafosslopi hentar vel í flíkur til útivistar. Hann er hlýr og einstaklega léttur miðað við þykkt.
Jöklalopi
Jöklalopi hentar í einlitar flíkur, teppi og mottur. Hann er þykkari en Álafosslopi og fljótprjónaður.
Einband
Einband er gott að nota í sjöl og léttar flíkur og passar mjög vel í útprjón.
Fjallalopi
Fjallalopi er nýjasti meðlimurinn í Lopafjölskyldunni! Hann er helmingi þynnri en Léttlopi. Hentar vel í fíngerðar, léttar flíkur, jafnt fyrir börn og fullorðna.
Hosuband
Hosuband er styrkt með næloni. Það er slitsterkt og því tilvalið í sokka og aðrar flíkur.
Léttlopi
Léttlopi er fjölhæfur, léttur og lipur. Flíkur úr Léttlopa eru notalegar jafnt inni sem úti.
Plötulopi
Plötulopi er óspunninn, mjúkur og léttur í sér. Meðhöndla þarf hann með lipurð þegar unnið er úr honum.